Skapalón
Sætún 8
105 Reykjavík
+354 516 9000
info@skapalon.is
A PHOTO

Orku Appið Komið í App Store

Það er okkur ljúft að tilkynna að Orku Appið, sem Skapalón hannaði, er komið í App Store. Beinið vöfrum ykkar hingað og náið í hið orkumikla app.

Appið má svo nálgast hér fyrir Android.

A TEXT POST

Atómstöðin og Skapalón!

Þann 1. þessa mánaðar gengu í eina sæng þau Atómstöðin og Skapalón. Með hnappheldu þessari verður til, svo vægt sé til orða tekið, eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sviði veflausna og stafrænnar miðlunar. Skapalón, sem samanstendur af þeim herramönnum Einari, Arnari og Jonna, hefur einbeitt sér að viðmótshönnun, “mobile” lausnum og öðru sem flokka má undir stafræna miðlun.

Leikur ekki nokkur vafi á að fagurfræðileg þekking þeirra og yfirskilvitlegur skilningur á háttarlagi vefnotenda muni blómstra enn frekar nú þegar sterkar undirstöður visku og þekkingar, sem saman komin er í toppstykkjum starfsmanna Atómstöðvarinnar, standa traustum fótum undir þeim. Er það óbilandi trú aðstandenda að sameining þessi og ávextir hennar muni bæta starfsskilyrði og lífsgæði allra, andlegt atgerfi þeirra og sálarlíf. Eða, að öllu gamni slepptu, verða til þess að við vinnum hjá mesta og besta veffyrirtæki landsins.

www.skapalon.is