RÚV valinn besti afþreyingar og fréttavefurinn
Á föstudaginn voru úrslit Íslensku vefverðlaunanna tilkynnt með pompi og prakt. Hlaut vefur Rískisútvarpsins, www.ruv.is, verðlaun sem “Besti afþreyingar og fréttavefurinn” en hönnun hanns var unnin af Skapalón.
Lofsamleg umsögn dómnefndar um vefinn hljómar svo:
Eftir að hafa vegið og metið alla tilnefnda vefi út frá tæknilegri útfærslu þeirra, frágangi, efnistökum, fróðleik, afþreyingargildi og gæðum innihaldsins, varð niðurstaðan sú að verðlauna vef sem frá tæknilegu sjónarhorni þykir mjög vel útfærður og vinnubrögðin til fyrirmyndar. Vandfundinn er sá vefur sem stendur þessum jafnfætis þegar kemur að efnismiklu og fjölbreyttu innihaldi, sem einnig er gert lesendum aðgengilegt á ýmsan máta utan vefsins sjálfs. Dómnefnd þótti sérstök prýði af farsímaútgáfunni sem fylgdi nýlegri og vel heppnaðri útlitsbreytingu á vefnum.
Upplýsingar um aðra sigurvegara kvöldsins má finna hér á vef SVEF.
Skapalón óskar RÚV, sem og öðrum sigurvegurum, til hamingjum með frábæran árangur.