Viðskiptastjóri
Vilt þú vinna með leiðandi fyrirtækjum sem leggja mikla áherslu á notkun vefmiðla í sínu markaðsstarfi? Ef svo er þá erum við með viðskiptavinina og fólkið til að láta það gerast undir þinni leiðsögn.
Sem viðskiptastjóri Skapalóns leiðir þú áfram teymi fagmanna fyrir hönd viðskiptavina okkar. Þú berð ábyrgð á verkefnum, útfærslum og gæðum þeirra verka sem þú ferð fyrir ásamt því að sjá um uppgjör þeirra. Við treystum á kunnáttu þína og eljusemi, berum virðingu fyrir metnaði þínum og drifkrafti, styðjum við bakið á þér og miðlum til þín þekkingu okkar.
Mikilvægt er að búa að…
- jákvæðri samskiptahæfni
- reynslu af verkefnastjórnun
- reynslu af markaðsmálum
- vefumsjón
- vera tæknilega þenkjandi
- menntun sem nýtist í starfi
- reynslu í vef/hugbúnaðarþróun
Við bjóðum…
- gott starfsumhverfi
- hæfileikaríkt samstarfsfólk
- sjálfstæði
- hvetjandi starfsumhverfi
- frábæra viðskiptavini
- krefjandi verkefni
- tækifæri til að skara framúr
Vinsamlegast sendið umsóknir með upplýsingum um nám og starfsreynslu á sos@skapalon.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2012. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.