Skapalón
Sætún 8
105 Reykjavík
+354 516 9000
info@skapalon.is
A PHOTO

Kvaddi Google fyrir Kansas.

Viðtal við Andra Má Kristinsson framkvæmdastjóra Kansas, nýja „markaðs-setningar-á-netinu-ráðgjafar-fyrirtækisins“ í Kaaber-húsinu, í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í morgun.

Nánar hér.

A PHOTO

Í dag er bóndadagur og af því tilefni ákvað elskulegt sterkara kynið að færa okkur karlpeningnum mjöð, smjer og harðfisk. Við þessa fórn urðu menn mjúkir mjög og það áður en ölið var kneift. Skáluðu melir hátíðlega stúlkunum til heiðurs og voru sammála sem einn um að betri samstarfskonur væri vart hægt að hugsa sér.

Skál!

A PHOTO

Nýtt klæðskerasaumað frá Skapalón : Vefur HRV Engineering http://www.hrv.is

A PHOTO

Nýr vefur Skapalón kominn í loftið og við ætlum að halda upp á það ásamt útgáfu Fítonblaðsins hér í Kaaber húsinu á eftir. Gleðin hefst kl. 17:00. Sjáumst vonandi sem flest.

A PHOTO

Skærasta stjarnan á veggnum!

A PHOTO

Vinur okkar og samstarfsmaður, Hermann Fannar Valgarðsson, lést þriðjudaginn 8. nóvember.

Það voru sannkölluð forréttindi fyrir okkur öll að hafa kynnst og unnið með þessum kraftmikla og lífsglaða manni sem lýsti upp tilveru okkar með glaðlegri nærveru sinni, jákvæðni og einstakri vinsemd.

Við hugsum með hlýhug til fjölskyldu Hemma og sendum þeim innilegar samúðarkveðjur.

Þín verður sárt saknað elsku vinur.

Samstarfsfólk og vinir hjá Skapalón.

A VIDEO

What is motion design? Áhugaverð stuttmynd um sögu hreyfimyndagerðar allt frá Saul Bass og Maurice Binder til þrívíddargrafík nútímans.

Meira á motion-plus-design.com