Skapalón
Sætún 8
105 Reykjavík
+354 516 9000
info@skapalon.is
A TEXT POST

Viðmótsforritari / CSS-ari óskast

Við leitum að viðmótsforritara / CSS-ara. 

Sem CSS-ari hjá Skapalón vinnur þú náið með vefhönnuðum og bakenda-forriturum í teymum við framendaforritun. Hjá Skapalón fær fólk tækifæri til að virkja hæfileika sína og bera ábyrgð á þeim verkþáttum sem unnið er við. 

Við leitum að fólki með reynslu sem vill starfa með framúrskarandi fólki við krefjandi og fjölbreytt verkefni. 

Mikilvægt er að hafa gott vald á:

  • HTML/XHTML/HTML5
  • CSS 2.1/CSS 3
  • Javascript
  • Vafra samhæfing (Cross-browser compatibility)
  • Grunn kunnáttu á Photoshop
  • Tök á að nota Javascript framewhorks (t.d jQuery, Mootools)
  • Gott auga þegar kemur að hönnun 

Við bjóðum 

  • Gott starfsumhverfi
  • Hæfileikaríkt samstarfsfólk
  • Sjálfstæði
  • Hvetjandi starfsumhverfi
  • Frábæra viðskiptavini
  • Tækifæri til að skara framúr

Vinsamlegast sendið umsóknir með upplýsingum um nám og starfsreynslu á sos@skapalon.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2012. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

A PHOTO

“Skapatron” tekur Öskudaginn alltaf hátíðlegan

A PHOTO

Alþjóðlegi LUV dagurinn

Í dag höldum við hátíðlegan, í minningu Hermanns Fannars Valgarðssonar, samstarfsmanns okkar og vinar, hinn alþjóðlega LUV dag.

Þennan dag leggja allir niður allar varnir. Faðmlög, ást og náungakærleikur ræður ríkjum.

Faðmaðu nágrannann, vini þína, samstarfsmenn, fjölskylduna og alla sem á þínum vegi verða. Þetta er það sem LUV dagurinn snýst um.

Starfsmenn Skapalóns ætla ekki láta sitt eftir liggja og munu faðma, knúsa og kyssa hvor aðra sem og samstarfsmenn, viðskiptavini, fjölskyldur og alla sem á vegi þeirra verða.

Við hvetjum alla til að halda upp á daginn með okkur með viðeigandi hætti.

Luv Dagurinn á Facebook

LUV,
Starfsmenn Skapalóns 

A PHOTO

Ársskýrsla Marel

Skapalón sá um að koma glæsilegri ársskýrslu Marel á Netið og óskum við þeim til hamingju með þetta frábæra framtak.

Ársskýrsluna, sem framsett er á frumlegan en aðgengilegan hátt, má nálgast hér.

A TEXT POST

RÚV valinn besti afþreyingar og fréttavefurinn

Á föstudaginn voru úrslit Íslensku vefverðlaunanna tilkynnt með pompi og prakt. Hlaut vefur Rískisútvarpsins, www.ruv.is, verðlaun sem “Besti afþreyingar og fréttavefurinn” en hönnun hanns var unnin af Skapalón.

Lofsamleg umsögn dómnefndar um vefinn hljómar svo:

Eftir að hafa vegið og metið alla tilnefnda vefi út frá tæknilegri útfærslu þeirra, frágangi, efnistökum, fróðleik, afþreyingargildi og gæðum innihaldsins, varð niðurstaðan sú að verðlauna vef sem frá tæknilegu sjónarhorni þykir mjög vel útfærður og vinnubrögðin til fyrirmyndar. Vandfundinn er sá vefur sem stendur þessum jafnfætis þegar kemur að efnismiklu og fjölbreyttu innihaldi, sem einnig er gert lesendum aðgengilegt á ýmsan máta utan vefsins sjálfs. Dómnefnd þótti sérstök prýði af farsímaútgáfunni sem fylgdi nýlegri og vel heppnaðri útlitsbreytingu á vefnum.

Upplýsingar um aðra sigurvegara kvöldsins má finna hér á vef SVEF.

Skapalón óskar RÚV, sem og öðrum sigurvegurum, til hamingjum með frábæran árangur.

A PHOTO

Nýr og glæsilegur vefur Íslandsbanka fór í loftið fyrr í dag og sá Skapalón um hönnun.

www.islandsbanki.is

A PHOTO

Eskimos Iceland

Það er okkur ljúft og skylt að tilkynna að nýr og einkar glæsilegur vefur fyrir Eskimos Iceland er kominn í loftið.

Í rúm 11 ár hafa Eskimos lagt metnað sinn í að skipuleggja ferðir, sjá um viðburðarstjórnun og skapa upplifanir fyrir öll helstu fyrirtæki og stofnanir landsins.

Það er því viðeigandi að nýr vefur sé á pari við þá upplifun sem Eskimos bjóða viðskiptavinum sínum og endurspegli ímynd fyrirtækisins og þjónustu í hvívetna.

Beinið vöfrum ykkar að iceland.eskimos.is og njótið.

A PHOTO

Orku Appið Komið í App Store

Það er okkur ljúft að tilkynna að Orku Appið, sem Skapalón hannaði, er komið í App Store. Beinið vöfrum ykkar hingað og náið í hið orkumikla app.

Appið má svo nálgast hér fyrir Android.

A TEXT POST

Skapalón með 7 tilnefningar til íslensku Vefverðlaunanna

Í dag voru tilnefningar til Íslensku Vefverðlaunanna tilkynnt og á Skapalón þar 7 vefi tilnefnda.

Er um að ræða eftirtalda 5 vefi:

Auk tveggja farsímavefja:

Óskum við þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem tilnefndir eru, auk samstarfs- og samkeppnisaðilum, til hamingju með tilnefningarnar.

Afhending fer fram í Tjarnarbíói kl 17.00 föstudaginn 3.febrúar. Nánari upplýsingar um tilnefningar og hátíðina sjálfa er að finna á vef SVEF.

A TEXT POST

Viðskiptastjóri

Vilt þú vinna með leiðandi fyrirtækjum sem leggja mikla áherslu á notkun vefmiðla í sínu markaðsstarfi? Ef svo er þá erum við með viðskiptavinina og fólkið til að láta það gerast undir þinni leiðsögn.

Sem viðskiptastjóri Skapalóns leiðir þú áfram teymi fagmanna fyrir hönd viðskiptavina okkar. Þú berð ábyrgð á verkefnum, útfærslum og gæðum þeirra verka sem þú ferð fyrir ásamt því að sjá um uppgjör þeirra. Við treystum á kunnáttu þína og eljusemi, berum virðingu fyrir metnaði þínum og drifkrafti, styðjum við bakið á þér og miðlum til þín þekkingu okkar.

Mikilvægt er að búa að…

  • jákvæðri samskiptahæfni
  • reynslu af verkefnastjórnun
  • reynslu af markaðsmálum
  • vefumsjón
  • vera tæknilega þenkjandi
  • menntun sem nýtist í starfi
  • reynslu í vef/hugbúnaðarþróun

Við bjóðum…

  • gott starfsumhverfi
  • hæfileikaríkt samstarfsfólk
  • sjálfstæði
  • hvetjandi starfsumhverfi
  • frábæra viðskiptavini
  • krefjandi verkefni
  • tækifæri til að skara framúr

Vinsamlegast sendið umsóknir með upplýsingum um nám og starfsreynslu á sos@skapalon.is

Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2012. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.